dags. | 14-01-2010
Nýr hópur byrjar í starfsendurhæfingu 18. janúar
Nýr hópur byrjar í starfsendurhæfingu mánudaginn 18. janúar. Boðið verður upp á fjölbreytta og uppbyggilega dagskrá fjóra daga í viku. Meðal þess sem í boði verður er hópefli, heilsutengd fræðsla, verkstæði, líkamsrækt og ýmis önnur fræðsla (t.d. tölvu- og fjármálafræðsla). Starfið mun fara fram í Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Vesturafli og Sjúkraþjálfun Vestfjarða.
Allar nánari upplýsingar veitir Harpa í síma 450 3070.
