dags. | 25-04-2010
Ársfundur SEV
Á morgun mánudag 26. apríl verður haldinn ársfundur Starfsendurhæfingar Vestfjarða. Fundurinn fer fram á Hótel Ísafirði og hefst með léttum hádegisverði kl. 12:00.
Til stendur að Elín Ebba Ásmundsdóttir komi og haldi erindi um starfsendurhæfingu undir lok hádegisverðarins, en sökum öskulags yfir Reykjavík er óvíst um hvort hún komist á fundinn.
Verði ekki flogið vegna ösku, mun Harpa Guðmundsdóttir hoppa í skarðið og flytja stutt erindi um rannsókn sem gerð var á starfsemi Vesturafls og samvinnu Vesturafls og SEV.
