Starfsemin
Starfsendurhæfingin getur varað allt frá þremur mánuðum upp í þrjú ár.
Í endurhæfingunni verður lögð áhersla á einstaklingsbundin úrræði sem miðast að því, að efla fólk til sjálfshjálpar eftir þörfum hvers og eins.
Starfsendurhæfingin getur meðal annars falist í menntun og fræðslu, fjármálaráðgjöf, sálfræðistuðningi, líkamsþjálfun o.fl. Þjónustan mun einnig fela í sér að undirbúa einstaklinginn fyrir vinnu, greina atvinnutækifæri hans, aðstoða hann við atvinnuleit og gerð atvinnuumsókna og tímabundinn stuðning á vinnustað ef með þarf.
